Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Hallíhalló

01. október 2006 klukkan 19:45
Jæja þá eru 2 skyndipróf búin í skólanum, stærðfræði og lífeðlisfræði, og gekk mér bara ágætlega á báðum. Fékk 8,2 í stærðfræði sem er alveg svona ásættanlegt en gæti alveg gert betur og ég á enn eftir að fá úr lífeðlisfræði. Vonum bara það besta;)
Það var ekki mikið gert hjá mér um helgina. Ég var svo ótrúlega þreytt eftir held ég bara vikuna, ég var alveg uppgefin og fór bara eldsnemma að sofa á föstudeginum. Á laugardeginum fór ég í smá heimsókn til Hildar elsku í ballettinum og hún og Halla elduðu alveg indæliskvöldmat fyrir mig (Hjördís gat því miður ekki séð sér fært um að mæta því hún var boðuð í afmælispartý í hinum enda bæjarins). Þannig að við skemmtum okkur alveg prýðisvel með rósavínsglas í hendi:D Horfðum síðan á Miss World, Sounds og Style (sem er svona tískusýning og tónelikar í leiðinni, fullt af frægum söngvurum) og skelltum síðan Notebook í tækið. Ég náði samt því miður ekki að klára hana því að ég vildi ekki láta Arnór, elskuna mína, sækja mig alltof seint.
Eitt annað mjög merkilegt sem ég lenti í á laugardaginn var að ég fékk bréf frá henni Sif minni, litla Ítalanum sem flúði land fyrir rúmum mánuði síðan. Takk æðislega fyrir það ástarpungur, þetta var ekkert smá sætt af þér. Þitt bréf ætti að vera á leiðinni ef það er ekki bara nú þegar komið.
Þú veist samt örugglega allt sem stendur í því þar sem ég er búin að tala við þig á msn:S en æ það er alltaf gaman að fá bréf og er annað í vinnslu;)
En ég segi þetta gott í dag, á að vera að læra íslensku:S
Gangi mér vel í því prófi!

Blelli, Ólöf
Ólöf Helga Gunnarsdóttir
Hildur skrifar ...
Köben í fyrramálið - vúhú!!!! Og btw elskan, það eru bara þjóðverjar sem segja "hallihallo", ekki íslendingar. ;)
04. október 2006 klukkan 15:17
Jölli skrifar ...
 
nice, ég fékk hærra á stæ prófinu :P
Ekki oft sem ég fæ hærra en þú á prófi ;)
Fékk sko 8,5 :O)

En þú mundir gera betur en eg i lifeðlisfræði
08. október 2006 klukkan 23:35
stebbi skrifar ...
 
Vá, nenniru ekki að segja BLELLI eða BLellaður eða eitthvað í þá áttina. Þið eruð að halda því fram að ég sé alltaf að koma með einhver ný orð en þetta blellli og það sjitt er bara það slappasta sem ég hef heyrt.. ! :)

ástarkveðjur stebbi
13. október 2006 klukkan 02:38
Hi astin min.....SAKNA TIN SVO SJUKLEGA MIKID!!!!!!!!! Vildi tu vaerir her hja mer!
Viltu gera tad fyrir mig ad blogga soldid meira.....svo eg hafi eitthvad ad lesa um ykkur durgana a Islandi....
Luvs ;*
19. október 2006 klukkan 13:30

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur

Hefuru ekkert að gera?...

Könnun

Að vera í útlöndum um Jólin