Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

dúddírú

10. september 2006 klukkan 20:14

Sif var að fara á föstudeginum til Ítalíu í ár :( Það var alveg ótrúlega erfitt að kveðja hana á fimmtudeginum. Ég ætlaði nú samt að mæta uppá flugvöllinn til að segja bæ við hana þar en svo vaknaði ég ekki við vekjaraklukkuna sem átti að hringja klukkan 4, eða ég veit ekki kannski hringdi hún bara aldrei. Allavega þá gat ég ekki einu sinni hringt í hana til að allavega heyra aðeins í henni í síma. Ég er strax farin að sakna hennar en þetta á vonandi eftir að vera mjög fljótt að líða.

Helgin mín var bara mjög þægileg. Ég fór á æfingu eftir skóla á föstudeginum. Bæði á Eldmóður-æfingu, því við vorum beðnar um að dansa á heilsudeginum þarna uppí Egilshöll á laugardeginum og svo fór ég líka á modernæfingu. Hún átti að vera í 2 tíma og ég var varla að nenna að mæta en ég er svo samviskusöm Glottandi að ég mætti nú samt. Og viti menn þetta var held ég bara meðal þeirra skemmtilegustu moderntíma sem ég er búin að fara í. Við vorum bara að læra dans í 2 tíma. Svo var ég reyndar í einhverju galsakasti og hló að öllu og Cameron, skemmtilegasti danskennari í heimi, var að kenna okkur og hann er svooo fyndinn. Allavega að þegar ég kom heim af æfingu þá fór ég bara heim til Arnórs og höfðu það bara kósý yfir spólu og nammi. 
Á laugardeginum fór ég síðan á æfingu klukkan 9 um morguninn og var á æfingum til 3. Þegar ég var nýkomin heim fékk ég að vita það að Eldmóðurstelpurnar voru uppí Sporthúsi að æfa fyrir kvöldið þannig að ég brunaði þangað. Fór síðan að dansa uppí Egilshöll klukkan hálf6 og enginn kom að horfa á mig Fýldur En æ "EVS"

Laugardagkvöldinu var líka bara eytt heima hjá Arnóri þar sem við vorum að passa Bigga litla krúsídúllu litla bróður Arnórs. Oh ég elska hann svo mikið, hann er bara 2 ára og svooo mikil krúsídúlla. Ég mundi setja mynd af honum hérna ef ég kynni það. Hey já ef einhver kann það þá er hjálp vel þegin Hlæjandi

Núna er ég bara heima hjá ömmsu að fara að læra eitthvað fyrir þennan skóla sem ég er í. Það þarf víst að gera það.

See you later aligator.....hehe......in a while crocodile!!

Ólöf

Ólöf Helga Gunnarsdóttir
Sif Italiufari skrifar ...
Hae hae...langadi bara til ad skila kvedju til tin saeta.....mjog fin fjolskylda....samt mjog erfitt ad vera her einn og kunna ekki tungumalid en tetta venst vonandi fljott....byrja i skolanum eftir 2 til 3 daga...hlakka til....eg mun alltaf hjola i skolann og i dansinn.....heyrumst fljott aftur ciao!
11. september 2006 klukkan 00:52
Hildur skrifar ...
 
Maður gæti nú kannski komið að horfa ef það væri látið vita fyrirfram.....
11. september 2006 klukkan 17:50

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur

Hefuru ekkert að gera?...

Könnun

Að vera í útlöndum um Jólin