Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Glasgow!

29. ágúst 2006 klukkan 13:34
Ég var að koma heim frá Glasgow í gær. Skellti mér í smá leiðangur með Guðrúnu (litlu frænku), Ástu (mömmu hennar) og Steinunni (ömmu hennar). Mesta og besta verslunarferð sem ég hef nokkurn tímann farið í Hlæjandi 

Við lentum á flugvellinum í Glasgow um klukkan 10 á breskum tíma. Við skunduðum útí næsta leigubíl til að komast uppá hótel sem fyrst. Það var svo fyndið þegar bílstjórinn fór að tala við okkur. Skoska er ekkert smá krúttlegt tungumál. Þegar við vorum komnar á hótelið þá fundum við út að við áttum ekki að fá herbergin fyrr en seinna um daginn þannig að við skildurm töskurnar bara eftir í lobbýinu og fórum að versla! Það var svooo mikið af flottum búðum þarna eruði ekki að grínast sko. Búð eftir búð, ég fann mér alltaf eitthvað sem mig langaði ég. Keypti mér líka alveg sjúklega mikið strax á föstudeginum. Síðan eftir langan dag í búðunum vorum við orðnar ansi þreyttar og ákváðum að skella okkur uppá hótel til að slaka aðeins á eftir "erfiðan" dag.
Við fengum herbergi uppá 4. hæð og viti menn það var engin lyfta. Þannig að við létum okkur bara hafa það og drössluðum ferðatöskunum uppá 4. hæð. Þegar upp var komið sáum við það strax á ganginum að þetta var ekki alveg hótelið sem við höfðum vonast eftir. Það hafði örugglega ekki verið ryksugað þarna í mörg ár. Og herbergin voru engan veginn skárri. Öll gólfin ekkert smá skítug og ógeðsleg og ekkert heitt vatn. Við gátum ekki einu sinni farið í sturtu. Þannig að Ásta tók sig til og hringdi bara í Hilton hótelið fyrir okkur, sagðist vilja hafa þetta almennilegt. Og já við fengum tvö herbergi á Hilton laugardags- og sunnudagsnóttina. Ég held í alvöru talað að þetta hafi verið með flottari hótelum og alveg peninganna virði Ullandi Svo fórum við til Edinborgar til að skoða kastalann á sunnudeginum. Ótrúlega flott borg. Svo auðvitað versluðum við alveg heilan helling.
Við semsagt fengum að lifa eins og prinsessur þessa helgi og ég var alveg að fíla það. Mæli eindregið með því að fara til Glasgow ef þið viljið versla allrækilega.

En ég er farin að læra. Maður á víst að gera það í skólanum;)

Ólöf
Ólöf Helga Gunnarsdóttir

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur

Hefuru ekkert að gera?...

Könnun

Að vera í útlöndum um Jólin