Fyrsti skóladagurinn...
22. ágúst 2006 klukkan 23:14
Ansi tómur dagurinn í skólanum í dag. Ég er ennþá í gamla bekknum en þó er hann búinn að minnka til muna. Grétar, Siggi og litla Sif eru að fara sem skiptinemar (eða reyndar þá er Siggi nú þegar farinn) og Grétar og Sif eru bara að fara mjög fljótlega. Síðan eru Anna og Tinna Rut í útlöndum, Teresa og Vigdís búnar að skipta um bekk og Helga flutt til útlanda.
Ekkert smá mikil minnkun fyrir einn bekk en þó fengum við eina nýja inní bekkinn og hún heitir Soffía. Hún er vinkona Berglindar og Steinnunnar S.
Það er ekkert smá tómlegt án Sifjar og svo er Vigdís líka farin þannig að ég þarf að finna mér aðrar svona góðar vinkonur. Það er alveg ömurlegt að hafa engan svona til að tala við. Reyndar hef ég nú Arnór minn, litlu elskuna mína, og svo náttúrulega Jói, Jölli og Hjörtur. Ég verð bara einhvernveginn að spjara mig þarna. Ég fer bara að bögga Tinnu og Önnu eða eitthvað
Talandi um Sif og að fara til Ítalíu. Hún er semsagt að fara eftir 2 vikur og 2 daga
Ég á eftir að sakna hennar svooooooo mikið að það fær ekki orðum líst hvað ég á eftir að gráta mikið. Ég hef svo lítinn tíma til að gera svo margt og mig langar að hitta Sif helst sem mest áður en hún fer. Svo kemst ég ekki í kveðjupartýið hennar sem verður núna um helgina því að ég er að fara til Glasgow. Sem er reyndar ekki slæmt þar sem ég er bara að fara að versla mér föt og djamma eitthvað með Guðrúnu frænku. Svo þegar ég kem heim á mánudeginum þá hef ég bara viku og 3 daga til að vera með Sif.
Menningarnótt var bara mjög gaman. Ég byrjaði á því að fara með Arnóri í bæinn til að skoða jakkaföt sem heppnaðist ekkert alltof vel. En við settumst bara niður á Sandholt kaffihúsið og fengnum okkur súkkulaðicroissant og doghnut með kóki og vorum bara eitthvað að rölta um bæinn. Þegar uppi var staðið fannst mér bara gaman. Síðan var skundað heim til að hafa sig til fyrir kvöldið. Það var matarboð hjá Ástu og Hirti á Bakkavörinni (frændfólk mitt) og allri familíunni boðið, þar á meðal kærustur/astar. Við fengum alveg ljúffengt lambakjöt og svo líka humar í hvílauk en þar sem ég borða ekki humar get ég bara sagt ykkur að flestum í kringum mig fannst hann alveg ljúffengur.
Stebbi nýi kallinn hennar Guðrúnar var svona eiginlega í fyrsta sinn officially boyfriend fyrir framan alla fjölskyduna og held ég líka pínu stressaður en hann spjaraði sig bara vel og öllum líkaði bara mjög vel við hann. Þó að Hjörtur litli átti mikinn hlut í því að skjóta soldið á Stebba;)
Eftir að hafa fengið sér þokkalega nóg af áfengi á Bakkavörinni þá skelltum við krakkarnir (Ég, Arnór, Hjörtur, Guðrún og Stebbi) okkur til Hjartar. Þar skemmtum við okkur áfram vel og ég fékk alveg nokkra sopa hjá Stebba af Tópas-skotinu hans
og þegar við vorum orðin ansi hress skelltum við okkur í eitthvað annað partý hjá einhverjum sem ég þekki ekki. Og beint úr því í bæinn. Á leiðinni í bæinn tvístraðist hópurinn eitthvað og á endanum vorum það bara ég og Arnór sem stóðu í bænum og vorum orðin alltof hífuð til að gera skemmt okkur eitthvað meira. Þannig að við vorum nýkomin í bæinn þegar við fundum okkur leigubíl og skunduðum heim en þá var klukkan um hálf2. Ansi slappt hjá mér að mínu mati þar sem ég ætlaði að djamma fram á rauða nótt með Ólöfu ást en það þarf að bíða til betri tíma víst.
Takk kærlega fyrir kvöldið elskurnar og ég set inn myndir um leið og ég er búin að ná í myndavélina sem ég gleymdi hjá Hirti.
Kv. Ólöf
Ekkert smá mikil minnkun fyrir einn bekk en þó fengum við eina nýja inní bekkinn og hún heitir Soffía. Hún er vinkona Berglindar og Steinnunnar S.
Það er ekkert smá tómlegt án Sifjar og svo er Vigdís líka farin þannig að ég þarf að finna mér aðrar svona góðar vinkonur. Það er alveg ömurlegt að hafa engan svona til að tala við. Reyndar hef ég nú Arnór minn, litlu elskuna mína, og svo náttúrulega Jói, Jölli og Hjörtur. Ég verð bara einhvernveginn að spjara mig þarna. Ég fer bara að bögga Tinnu og Önnu eða eitthvað
Talandi um Sif og að fara til Ítalíu. Hún er semsagt að fara eftir 2 vikur og 2 daga
Menningarnótt var bara mjög gaman. Ég byrjaði á því að fara með Arnóri í bæinn til að skoða jakkaföt sem heppnaðist ekkert alltof vel. En við settumst bara niður á Sandholt kaffihúsið og fengnum okkur súkkulaðicroissant og doghnut með kóki og vorum bara eitthvað að rölta um bæinn. Þegar uppi var staðið fannst mér bara gaman. Síðan var skundað heim til að hafa sig til fyrir kvöldið. Það var matarboð hjá Ástu og Hirti á Bakkavörinni (frændfólk mitt) og allri familíunni boðið, þar á meðal kærustur/astar. Við fengum alveg ljúffengt lambakjöt og svo líka humar í hvílauk en þar sem ég borða ekki humar get ég bara sagt ykkur að flestum í kringum mig fannst hann alveg ljúffengur.
Stebbi nýi kallinn hennar Guðrúnar var svona eiginlega í fyrsta sinn officially boyfriend fyrir framan alla fjölskyduna og held ég líka pínu stressaður en hann spjaraði sig bara vel og öllum líkaði bara mjög vel við hann. Þó að Hjörtur litli átti mikinn hlut í því að skjóta soldið á Stebba;)
Eftir að hafa fengið sér þokkalega nóg af áfengi á Bakkavörinni þá skelltum við krakkarnir (Ég, Arnór, Hjörtur, Guðrún og Stebbi) okkur til Hjartar. Þar skemmtum við okkur áfram vel og ég fékk alveg nokkra sopa hjá Stebba af Tópas-skotinu hans
Takk kærlega fyrir kvöldið elskurnar og ég set inn myndir um leið og ég er búin að ná í myndavélina sem ég gleymdi hjá Hirti.
Kv. Ólöf
Ólöf Helga Gunnarsdóttir