Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Helgin framundan...

17. ágúst 2006 klukkan 14:31
Nú er kominn fimmtudagu og helgin framundan. Þó að þetta sé síðasta helgin fyrir skólann hlakka ég mjög til hennar. Veit ekki alveg hvað ég ætla að gera á föstudaginn en ég er að fara í bæinn á laugardaginn. Djeemmin með Ólöfu sætu (mjög góðri vinkonu minni sem býr í New YorkGlottandi) Það verður mjög gaman.
Svo eftir allt djammið á laugardeginum er ég kannski að fara uppí sumarbústað til pabba. Ég er mjög stressuð að fara þar sem ég hef aldrei hitt þessa konu hans pabba (en hún er valdur þess að mamma og pabbi skildu fyrir 2 árum síðan) né hef ég hitt hana "systur" mína, eða frekar sagt hálfsystur, sem er að verða eins árs í október. Ég veit ekki alveg hvernig ég á eftir að höndla þetta á sunnudeginum, ég á pott þétt eftir að hætta við á síðustu stundu eða eitthvað. En ég vona bara það besta. Ætla nú að fá systur mína með mér, svona mér til stuðnings þar sem þær hafa mörgum sinnum farið að hitta pabba á Neskaupstað þar sem hann býr núna. Já það er rétt hann flutti til Neskaupstaðar. Ekki skil ég hvernig hægt er að flytja til Neskaupstaðar eftir að hafa búið í stórborgum eins og Berlín og svona. Neskaupstaður, algjört skítapleis.

En það verður ekki allt leiðinlegt á sunnudaginn heldur er Ólöf Ruth að koma í kvöldmat til mín og ég ætla að elda fyrir hana mjög góðan tortellini rétt sem ég fann á netinu, sjaldan séð eins girnilegan pastarétt. MMMM, hlakka mjööög til.

Segi þetta gott í dag!

Kv. Ólöf
Ólöf Helga Gunnarsdóttir

Skrifa athugasemd

Innskráningar kubbur

Hefuru ekkert að gera?...

Könnun

Að vera í útlöndum um Jólin