Í skólanum....
19. október 2006 klukkan 13:34
Ég sit hérna í skólanum, mætt alltof snemma til að fá far með Arnóri og að bíða eftir að einhver komi og skemmti mér.
Það verður sko brjálað að gera hjá mér í dag. Ég er að fara bara á æfingu eins og venjulega á fimmtudögum, 4-8, en svo þarf ég að fara uppí Laugardalshöll eftir það til að æfa fyrir smá sýningu sem ég, Halla, Hildur, Ásrún og Védís (allt stelpur úr dansinum hjá mér) erum að fara að dansa á alla helgina. Þetta er semsagt einhver "sýning" sem heitir KONAN og er fullt af einhverjum fyrirlestrum þarna og svo líka tískusýningar og við ætlum einmitt að taka þátt í einni svoleiðis. Við erum að fara að sýna fyrir Oroblu. Verðum semsagt í sokkabuxum, boxers frá Oroblu og svo hlýrabolum eða síðerma bolum. Það er búið að vera rosalega gaman að æfa fyrir þetta. Við höfum þetta þannig að ég, Halla og Hildur förum byrjum tískusýninguna með smá rútínu á táskóm og beint eftir það koma Ársún og Védís og þær eru líka búnar að búa til smá moderndans sem þær dansa síðan. Þegar við erum búnar að koma fram þá held ég að einhver módel komi og bara labbi eitthvað og sýni föt en svo eftir tískusýninguna komum við aftur inná. Þá verðum við komna í svona cabaret-skó (hælaskó eins og samkvæmisdansarar nota) og við smelltum saman nokkrum sporum í Chicago-stæl. Ég kvíði pínu fyrir að sýna þetta því sviðið er víst ekkert eitthvað fullkomið en við gerum okkar besta. Það sem ég er aðallega ánægð með er að við gerðum þetta alveg sjálfar og á bara 1 og hálfum degi. Þannig að ef þið hafið áhuga á að koma og sjá okkur þá verðum við þarna föstudag, laugardag og sunnudag. Man samt ekki hvenær.
En ég er bara farin að lesa eða eitthvað, nenni ekki að hanga svona lengi í tölvunni.
Cia bello......Ólöf
p.s. er þetta betra svona Stebbi;)!

Ólöf Helga Gunnarsdóttir
Elska tig!;*
Ciao bella;*